Þetta er búinn að vera meiri helvítis hálfur mánuður, eyddi þar síðustu viku í að klára það sem klára þurfti fyrir próf þannig að maður hefði nú próftökurétt, það gekk auðvita eftir.
Þannig að síðasta vika fór í að lesa fyrir stjórnun eða “ledelse” líkt og þetta heitir hérna úti.
Las ég bara nokkuð samviskusamlega fyrir þetta próf með það upp á vasann að prófið væri á ensku. Mætti í próf á mánudag og fékk að vita það að prófið væri á norsku og ég fengi ekki að nota orðabók það skildi eitt yfir alla ganga.
Eitt yfir alla ganga sagði ég og æstist allur upp tapaði hálftíma á því að reyna að leiðrétta þetta því ég vissi alveg að ég er skráður sem enskumælandi þarna og var skráður á prófblaðið sem einstaklingur sem á að fá próf á ensku.
Þetta lið var ekkert að gefa sig en ég náði samt að fá það til að viðurkenna að þetta var þeirra misstök en ekki mín þannig að ég vann þarna hálfan sigur.
En ég fór og tók þetta helvítis próf eftir að hafa tapað hálftíma á þessu rugli og svaraði því skilmerkilega með slatta af stafsetningar villum, sem ég held að er bara nokkuð eðlilegt.
Nota Bene ég skrifaði á ensku, það er þó skárra en að skrifa á Norsku.
Þetta verður forvitnilegt að sjá útkomuna úr þessu því það er tvennt ólíkt að lesa texta á fræðimáli (svona svipað að lesa Oxford ensku eða lesa stíl eftir íslenskufræðing sem er að slá um sig með fagurfræðilegu skrifamáli) og lesa dagblöð eða tala norsku við fólk.
Þetta hljómar auðvelt en er það ekki.
Ég kom auðvita bandbrjálaður út úr þessu prófi vel pirraður og ómögulegur til samskipta.
Ákvað að setjast niður og skrifa ritgerð sem ég átti að skila inn í dag fyrir klukkan 2.
Ég var búinn að afskrifa þessa ritgerð því ég sá bara fram á að ég næði ekki að skrifa hana og myndi því ekki standa áfangann. Fórnin var svosem ekki mikil þetta er svona hálfur áfangi sem heitir “Introduction to international fisheries management” og er í svipuðu formi og málstofan heima en er kenndur af nokkuð frægum fræðimanni á þessu sviði Sven Jentoft heitir hann og prófessor við NFH.
Jæja við áttu að skila ritgerð til að fá einkunn og var ég búinn að afskrifa þetta því ég sá ekki fram á að geta skrifað þetta og lesið fyrir prófið á mánudaginn. Við fengum ekki ritgerðar verkefnið fyrr en á föstudaginn þannig að öllu jöfnu hefði maður haft helgina til að skrifa.
Ég kom heim á mánudaginn klukkan 4 og byrjaði að lesa greinar og drasl fyrir heimildar öflun. Barði síðan saman ritgerð í gær upp á 12 bls um “Co-management” sem hjálpartæki til að auðvelda mönnum að ná réttlátri niðurstöðu við úthlutun á kvótum.
Þetta varð að duga og vona ég að það dugar til að standa þennan áfanga, ef ekki þá er eitthvað að þessu kerfi því þetta er bara hin fínasta ritgerð miða við tíma allavega.
Ég er samt á því að Norðmenn eru búnir að gera mig að skotskífu fyrir allan pirring sem þeir eru búnir að byggja upp gagnvart Íslendingum í gegnum tíðina í sambandi við fiskveiðar.
-gunni.